Skip to content
TrustList
Frumtak Ventures cover

About Frumtak Ventures

Patient centric digital care platform that is scalable across a wide range of chronic illnesses Real-time supply chain visibility solution, delivered as a service Integrated SaaS solution for managing deskless operations in hotel operations Sales Enablement Software for Salesforce, Digital Asset Management (DAM) Re-engineering the world’s best 4×4 vehicles to give the same driving experience whatever the adventure Digital banking platform that helps banks, businesses and individuals manage their financial data SaaS platform to sell and operate multi-day travel itineraries, powered by Salesforce A marketing platform made exclusively for the event industry Visual planning solution for the generic pharma industry Fantasy world and lifestyle brand from Iceland Human Resource SaaS solution focused on streamlining onboarding of new hires Diversity, Equality and Inclusion specialist with solutions for workplaces globally Sports teach management and calendar application that simplifies all communication, planning and organization Enabling a better sounding world with next generation sound simulation and spatial audio technology

Sprotafyrirtækið Treble Technologies hefur lokið 8 milljóna evra fjármögnunarlotu

Sprotafyrirtækið Treble Technologies, sem þróar tækni til hljóðhönnunar, hefur safnað 8 milljónum evra sem nemur jafnvirði 1,2 milljörðum króna Þar af koma 5,5 milljónir evra frá fjárfestum og 2,5 milljónir evra er styrkur frá Evrópska nýsköpunarráðinu (European

Abler tryggir sér 520 milljónir til að efla grunnstoðir íþrótta- og tómstundastarfs á alþjóðavísu með stafrænum lausnum

Reykjavík, 15 september 2022 – Abler, leiðandi í gerð hugbúnaðarlausna sem auðvelda skipulag íþrótta- og tómstundastarfs, tilkynnti í dag 520 milljóna króna fjármögnun frá Frumtaki Helsta lausn félagsins, Sportabler, er mörgum kunn enda notuð af flestum

Activity Stream kaupir Yesplan og crowdEngage

Íslenska hugbúnaðarfyrirtækið Activity Stream, sem sérhæfir sig í íþrótta- og skemmtanaiðnaði, tilkynnti í dag kaup á tveimur fyrirtækjum Activitiy Stream, sem telur Eyri og Frumtak sem stóra hluthafa, hefur vaxið um 250% frá ársbyrjun 2021 að því er kemur fram í

Þegar við, fjárfestingastjórar Frumtaks, höfum fundið verkefni sem okkur finnst spennandi tökum við það formlega fyrir og ákveðum að leggja það fyrir stjórn sjóðsins til kynningar því það er stjórn sjóðsins sem tekur hina eiginlegu fjárfestingarákvörðun Stjórnarfundir eru yfirleitt mánaðarlega Kynningin er með þeim hætti að frumkvöðullinn mætir á stjórnarfundinn og kynnir verkefnið í 50 mínútur þar sem gert er ráð fyrir 10-15 mínútum í spurningar og svör Það er mikilvægt að geta náð á skýran og skilvirkan hátt að útskýra fjárfestingatækifærið Ef það tekst þá liggur ákvörðun fyrir eftir fundinn, annaðhvort að hafna verkefninu eða að fjárfestingastjórar sjóðsins fá heimild til að ganga til samninga

Það getur tekið tíma að ganga frá samningum og sérstaklega að ljúka áreiðanleikakönnunum Það ræðst mikið til af því hvað frumkvöðullinn hefur unnið heimavinnuna sína vel og skjalað vel það sem hann er að gera Þá gengur allt betur Hjá Frumtaki er stefnt að því að ferillinn frá því að verkefnið er formlega tekið fyrir þangað til fjármunir eru komnir til fyrirtækisins taki innan við 90 daga

Það eru margir sem halda að þarna ljúki málinu en það er öðru nær því þarna hefst sameiginleg vegferð aðila sem ætlað er að skila árangri Það þarf að vera skilningur á væntingum og framlagi aðila og sérstaklega er það mikilvægt fyrir frumkvöðulinn að skilja að fjárfestingasjóðurinn getur verið mikilvægur bandamaður með ráðgjöf sinni og samböndum en hann tekur ekki yfir ábyrgðina t d á rekstri eða fjármögnun félagsins Fjárfestirinn á að hafa stefnumótandi hlutverk þar sem hann styður frumkvöðulinn í að ná markmiðum sínum með félagið Á sama hátt á frumkvöðullinn að nýta sér þennan stuðning en hann þarf að skilja að fjárfestinum eru takmörk sett varðandi þann tíma sem hann hefur til að vera með félaginu og getur því þurft að selja fyrr en frumkvöðullinn

Á þennan hátt ná báðir aðilar því besta út úr samstarfinu

Svana Gunnarsdóttir er framkvæmdastjóri og einn eigenda Frumtak Ventures, sem er umsýsluaðili Frumtakssjóðanna Svana er með alþjóðlega meistara gráðu frá Nyenrode University í Hollandi og var hluti af því námi við Kellogg School of Management í Bandaríkjunum og Stellenbosch University í Suður Afríku Svana hefur mikla reynslu af stofnun og rekstri sprota og frumkvöðlafyrirtækja erlendis sem og samruna og yfirtöku Hefur hún einnig komið að stjórnarsetu og gegnt ýmsum trúnaðarstörfum í öðrum sprotafyrirtækjum Svana hefur setið í stjórnum þeirra félaga sem eru í eignasafni Frumtaks Svana bjó í 18 ár í Hollandi en flutti heim árið 2009

Follow Svana on Linkedin Eggert er fjárfestingastjóri og einn eigenda Frumtak Ventures, sem er umsýsluaðili Frumtakssjóðanna Hann var sjálfur að stofna og stýra rekstri sprota og frumkvöðlafyrirtækja á sviði upplýsingatækni frá árinu 1981 til 2006 Hann hefur unnið mikið að málefnum UT iðnaðarins og gegnt fjölda trúnaðarstarfa, síðast sem formaður SUT Hann hefur einnig unnið að hagnýtingu þekkingarverðmæta og tekið þátt í alþjóðlegum verkefnum á því sviði Eggert var stundakennari hjá Háskóla Íslands og Háskólanum í Reykjavík árin 2000-2010 Eggert lauk doktorsprófi í þekkingarstjórnun árið 2008 frá Brunel University/Henley Management College í Bretlandi þar sem hann sérhæfði sig í áhrifum óefnislegra verðmæta á frammistöðu lítilla UT fyrirtækja Frá stofnun Frumtakssjóðanna hefur hann setið í stjórnum þeirra fyrirtækja sem eru í eignasafni Frumtaks ásamt því að taka virkan þátt í sprotaumhverfinu

Follow Eggert on Linkedin Ásthildur er einn eigenda og fjárfestingastjóra Frumtaks Ventures Áður en hún gekk til liðs við eigendahópinn var hún stjórnarformaður félagsins frá 2015-2021 Hún hefur setið í stjórnum ýmissa félaga, til að mynda stjórn Marel frá 2010-2021, þar af síðustu sjö árin sem sem stjórnarformaður félagsins, og stjórn Icelandair Group frá 2012-2019 Áður leiddi Ásthildur viðskiptarþróun hjá Össuri, þar með talið yfirtökur og fjármögnun, og starfaði sem rekstrarráðgjafi hjá alþjóðlega ráðgjafafélaginu Accenture Ásthildur er með MBA frá Rotterdam School of Management og próf í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands Ásamt stjórnarsetu í fyrirtækjum í eignasafni Frumtaks situr hún í stjórn Íslandsstofu, í háskólaráði Háskóla Íslands og ráðgjafaráði Boards Impact Forum

Categories & features

Ask TrustList to introduce you to Frumtak Ventures

TrustList reads every request before passing it on, and sends it only where the funder's stage and focus look like a fit. We do not charge for introductions, and we cannot promise a reply.

Protected by reCAPTCHA — Google Privacy Policy and Terms apply.

Reviews

Write the first review of Frumtak Ventures

Used it? Your experience helps other buyers decide.

Write a review

Questions & answers

No questions yet. Be the first to ask about Frumtak Ventures.

Frumtak Ventures alternatives

Similar listings buyers compare against this one.