
Intrepid


Góð samskipti sérhæfa sig í ráðningum stjórnenda og efnilegra stjórnendaefna
Fyrirtæki leita til okkar þegar þau eru að ráða í lykilhlutverk og miklu skiptir að fá réttan aðila
Hægt er að fá okkur í ráðningar árangurstengt, á föstum verðum og í gegnum sveigjanlega samstarfssamninga sem nýta má við leit í fleiri en eina stöðu
Góð samskipti framkvæma einnig launakannanir og veita ráðgjöf um starfskjör
Við leggjum áherslu á fjölbreytni í úrtakshópnum, hvort sem er með tilliti til reynslu, aldurs, kyns eða uppruna
Fólki sem er að horfa í kringum sig eftir starfi er velkomið að senda okkur póst en við eigum þess ekki kost að taka viðtöl nema í tengslum við þau störf sem við erum að leita í hverju sinni
Góð samskipti eru leiðandi í þjálfun stjórnenda á Íslandi
Góð samskipti standa reglulega fyrir þjálfun á sviði framkomu, samskipta, breytinga, leiðtogafræða, ákvarðanatöku og krísuviðbragða
Að þjálfuninni koma starfsmenn Góðra samskipta auk öflugra aðila á mála hjá sérfræðinetinu Consignus
Einstaklingar þurfa sífellt að þróa sig til að halda sér í fremstu röð og til að tileinka sér nýja þekkingu, hvort sem er á sínu sviði eða sem stjórnendur og leiðtogar
Ráðgjafar okkar vinna með æðstu stjórnendum og stjórnendateymum í atvinnulífinu að því að þróa mikilvæga eiginleika þeirra og styrkja þá, bæði sem einstaklinga og teymi
Meðal þess sem við bjóðum:
Með samstarfi við Ogilvy, sem er stærsta ráðgjafafyrirtæki heims á sviði markaðsmála, geta Góð samskipti boðið íslenskum fyrirtækjum alþjóðlega ráðgjafa í fremstu röð við vörumerkjavinnu, tekjuöflun, markaðsrannsóknir og stefnumótun til lengri tíma
Með sérfræðinetinu Consignus bjóða Góð samskipti viðskiptavinum sínum aðgang að mörgum öflugustu stjórnendum og sérfræðingum landsins í tímabundin ráðgjafaverkefni
Ræðum það
er hlaðvarp Góðra samskipta
Við fjöllum um ýmsar hliðar á atvinnulífinu og ræðum um ráðningar, samskipti, stefnu og rekstur Við fáum til okkar áhugavert fólk til að ræða við okkur um þessi málefni
Hægt er að nálgast þættina á öllum helstu hlaðvarpsveitum
Used it? Your experience helps other buyers decide.
Write a reviewNo questions yet. Be the first to ask about Góð samskipti.
Similar listings buyers compare against this one.

Intrepid

Hanson Regan

Insperity

First Choice
121 Silicon Valley, Inc.

1st Choice Staffing Solutions
Everything here links back to the same verified catalogue. Pick your next stop.