Skip to content
TrustList
Brennidepill cover

About Brennidepill

Rúmlega 20 ára reynslu mína við mannauðsmál og stjórnun er svo eitthvað sem ég nota líka í stjórnunarráðgjöf fyrir fyrirtæki og eins í þjónustuna mína Bakhjarl á bakvakt

Ég hef alla tíð haft gaman að, og gert mikið af því að lesa og fræðast - og miðla svo þekkingu minni og reynslu með öðrum

“Being a self-leader is to serve as

chief, captain, president, or CEO of one’s own life”

Meira um mig - og hvað ég get gert fyrir þig:

Ég hef starfað við mannauðsmál og stjórnun frá árinu 2000, mest á sviði almennrar mannauðsstjórnunar en einnig á sviði rekstrar, markaðsmála, húsnæðismála o fl Frá árinu 2006 hef ég verið í framkvæmdastjórnun þeirra fyrirtækja sem ég hef starfað hjá, en ég hef einnig setið í stjórnum fyrirtækja og félagasamtaka og sinnt ýmsum sjálfboðaliðastörfum

Ég hef mikið verið í breytingastjórnun, m a tengt sameiningum fyrirtækja, við að breyta menningu og ímynd fyrirtækja o fl Einnig stuðningi við stjórnendur með þeirra hlutverk og almenna starfsmenn, varðandi hvernig þeir geta sem best haldið áfram í breytilegu umhverfi

Ég hef mjög gaman af að lesa og fræðast - en ekki síður að miðla þekkingu minni og reynslu með öðrum Þessa dagana er mér mjög hugleikið að skoða allt varðandi framtíð vinnu, vinnustaða, vinnuafls og vinnumarkaðar

Á undanförnum árum hafa birst eftir mig mikill fjöldi greina um stjórnun en einnig hef ég mætt í fjölmörg viðtöl í útvarpi og sjónvarpi, um stjórnun og ýmislegt sem tengist mannauðsmálum Einnig hef ég talað á mörgum ráðstefnum, innanlands og utan

Í september, árið 2021, kom út bók sem ég skrifaði með dr Árelíu Eydísi Guðmundsdóttur; Völundarhús tækifæranna - bylting á vinnumarkaði, giggarar og aukin lífsgæði

Í kjölfarið hef ég haldið töluvert af erindum fyrir fyrirtæki og félög, um framtíð vinnu, vinnustaða, vinnuafls og vinnumarkaðar

Ég lauk MBA námi frá University of New Haven í CT, USA, vorið 2000

Ég lauk námi í Executive Coaching frá Háskólanum í Reykjavík árið 2012 Ég fékk ACC vottun markþjálfa frá ICF árið 2013 og endurnýjaði vottunina svo árið 2016 Sökum anna náði ég ekki að endurnýja vottunina árið 2019 - en getan til að markþjálfa er enn til staðar

Request a demo or quote from Brennidepill

Protected by reCAPTCHA — Google Privacy Policy and Terms apply.

By sending, you agree we may share your request and contact details with the provider once you confirm your email.

Reviews

Write the first review of Brennidepill

Used it? Your experience helps other buyers decide.

Write a review

Questions & answers

No questions yet. Be the first to ask about Brennidepill.

Brennidepill alternatives

Similar listings buyers compare against this one.